Tæknilegar upplýsingar
Kostir við CLIPSO efni:
- Brunaflokkun: B-s1, d0
- Framleitt í Frakklandi, ISO 9001 vottað, CE vottað
- Umhverfisvæn lausn sem inniheldur ekki PVC
- Tekur ekki í sig stöðurafmagn (dregur ekki í sig ryk)
- Hægt að klæða í kring um raf- og hitaveitulagnir
- Hægt að strekkja í hvaða form sem er, tvívíð og þrívíð
- Klæðir bæði veggi og loft
- Hefur 10 ára ábyrgð (springur ekki og gulnar ekki)
- Hægt að mála
- Rykfrí uppsetning
- Lyktarfrí uppsetning ( ekkert spartl eða málning)
- Samskeytalaust loft allt upp í 5,1 x 50 metrar
- Hægt að þrífa
- Torséð samskeyti ef að skeyta þarf dúknum saman
Vissir þú að...

CLIPSO er eitt af fyrstu fyrirtækjunum sem að framleiðir dúkloft til að fá A+ orkuvottun á klæðningar
sínar. Síðan 1. Janúar 2012 er orðið skylda fyrir framleiðendur innan ESB að merkja vörur sínar með
orkuvottun og er þetta hæsta mögulega einkunn í lofta- og veggkerfum sem að gefin er.

FRAMLEIÐSLA
Í framleiðsluna á CLIPSO eru eingöngu notuð umhverfisvæn efni. Framleiðsluferlið krefst lítillar orku
og er í alla staði lítið mengandi. Það litla sem að fellur til af úrgangsvatni við framleiðslu er að fullu
endurnýtt.

FLUTNINGUR
Varan er létt og tekur lítið rúmmál í flutningi, því er flutningstengdur orkukostnaður lítill og CO2
útblæstri haldið í lágmarki. Umbúðirnar eru að fullu endurvinnanlegar og því eru áhrif CLIPSO á
umhverfið afskaplega lítil.

UPPSETNING
Þar sem að klæðningin er kaldstrekkt er engin þörf á að hita upp rýmið eins og með aðrar svipaðar
lausnir. Uppsetningin skilur mjög lítið eftir sig í náttúrunni í formi úrgangs og er þetta því sérstaklega
umhversvæn lausn á alla vegu.

VÖRURNAR
Vörurnar eru ætlaðar til að vera mjög langlífar og því er lítil þörf á endurnýjun. Vörurnar frá CLIPSO
innihalda engin krabbameinsvaldandi efni (CMR) og gefa ekki frá sér neinar eitraðar gufur (VOC).
Vegna þessa hefur CLIPSO fengið Oeko-Tex 100 umhversstimpil og A+ orkuvottun á allar sínar vörur.

ENDURVINNSLA
Allar vörur frá Clipso sem og umbúðir utan af þeim eru að fullu endurvinnanlegar.